Betri vinnutími

Í flestum kjarasamningum sem voru undirritaðir veturinn 2019-2020 er kveðið á um heimild til að gera breytingar á skipulagi vinnutíma og stytta vinnuvikuna í allt að 36 virkar vinnustundir á viku. Þetta á þó ekki við um öll stéttarfélög, því ýmsir hópar eru með annars konar útfærslu á vinnuskyldu en hefðbundna 40 stunda vinnuviku.

Meginmarkmið breytinganna er að stuðla að umbótum í starfsemi ríkisstofnana, bæta vinnustaðamenningu og auka samræmingu vinnu og einkalífs án þess að draga úr skilvirkni og gæðum þjónustu.

Á þessum vef má finna ýmsar leiðbeiningar og fræðsluefni og algengustu spurningum sem upp koma við innleiðingu betri vinnutíma svarað.

Fréttir og fróðleikur

Breytingar á fylgiskjali 2

Í kjarasamningum 2023 voru gerðar breytingar á ákvæðum um vaktahvata og stórhátíðarálag.

Útreikningur á orlofi

Útreikningur á orlofi hefur tekið breytingum eftir að vinnuvika var stytt hjá starfsfólki ríkis, sveitarfélaga og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Upprifjunarnámskeið fyrir starfsfólk í vaktavinnu

Starfsfólk getur skráð sig á upprifjunarnámskeið um þær breytingar sem hafa fylgt betri vnnutíma í vaktavinnu.
Fleiri fréttir

Betri vinnutími

dagvinnufólks

Bætt vinnustaðamenning og betri nýting vinnutíma er meðal helstu markmiða styttingar vinnutíma. Forsenda styttingar hjá dagvinnufólki er samtal um betri vinnutíma á hverri stofnun fyrir sig. Útfærslan tekur mið af starfsemi stofnunar og getur því verið með ólíkum hætti milli stofnana.

Kynntu þér málið

Betri vinnutími

vaktavinnufólks

Markmiðin með betri vinnutíma í vaktavinnu eru að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og þjónustuþega auk þess sem þeim er ætlað að auka jafnvægi á milli vinnu og einkalífs.  Þá eru það einnig markmið að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari, stöðugleiki í mönnun aukist, breytileg yfirvinnu minnki og að bæta öryggi og þjónustu við almenning.

Kynntu þér málið