23.11.21
Upprifjunarnámskeið fyrir starfsfólk í vaktavinnu
Verkefnastjórn betri vinnutíma í vaktavinnu og Starfsmennt bjóða upp á upprifjunarnámskeið fyrir starfsfólk um breytingar á vinnutíma vaktavinnufólks hjá opinberum launagreiðendum og tóku gildi þann 1. maí síðastliðinn.
Námskeiðin eru ætluð starfsfólki sem vinnur vaktavinnu hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Á námskeiðunum verður m.a. farið yfir markmið, leiðarljós og forsendur betri vinnutíma í vaktavinnu, virkni kerfisins og eftirfylgni nú þegar um 6 mánaða reynsla er komin.
Námskeiðin eru eftirfarandi daga:
8. desember kl. 9.30-11.
9. desember kl. 14-15.30.
Skráning fer fram á vef Starfsmenntar (hlekkur á skráningu).
![Upprifjunarnámskeið fyrir starfsfólk í vaktavinnu - mynd](/library/Myndir/Vaktavinna/N%c3%a1mskei%c3%b0-og-fr%c3%a6%c3%b0sla.jpg?proc=singleNewsItem)