15.03.21

Ný fræðslusíða fyrir vaktasmiði og starfsfólk

Ný fræðslusíða er komin út, Vaktakerfi - Fræðsla. 

Fræðsluefnið er sérstaklega hugsað fyrir vaktasmiði og starfsfólk sem notar vaktakerfin Vinnustund, Mytimeplan og Timon.

Tilgangur

Tilgangur síðunnar er að safna saman fræðslumyndböndum frá algengustu vaktakerfunum sem notuð eru hjá opinberum launagreiðendum og tengjast betri vinnutíma í vaktavinnu.

Vaktasmiðir og starfsfólk er hvatt til að kynna sér sérstaklega leiðbeiningar og myndbönd um nýju launamyndunarþættina, vægi vinnuskyldustunda og vaktahvata.  

Ný fræðslusíða fyrir vaktasmiði og starfsfólk - mynd
Fara í áskrift