15.02.21
Námskeið fyrir vaktasmiði
Vaktasmiðir hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu er hvattir til að koma á námskeið vegna betri vinnutíma í vaktavinnu.
Hver vaktasmiður er hvattur til að mæta á tvö námskeið. Vaktasmiðanámskeið 1 er undanfari vaktavinnunámskeiðs 2.
Markmið námskeiðanna
Markmið námskeiðanna er að efla vaktasmiði í að gera vaktaskýrslur í samræmi við áherslur betri vinnutíma í vaktavinnu og hafa leiðarljós verkefnissins í forgrunni.
Á námskeiðunum verður m.a. farið yfir:
- Breytingastjórnun
- Nýtt launamyndunarkerfi og breytingar sem þurfa að eiga sér stað í gerð vaktaskýrslna vegna þess
- Forgangsröðun hagsmuna og jafnræði í starfsmannahópi
- Samsetningu vakta
- Hvíldartímalöggjöf
Um námskeiðin
- Vaktasmiðanámskeið 1 er 2. klst. námskeið og vaktasmiðanámskeið 2 90 mínútna námskeið
- Kennt verður í gegnum teams
- Allar nánari upplýsingar má finna á vef Starfsmenntar
Skráning á námskeiðin fer fram á vef Starfsmenntar